Friday, April 08, 2005
Blessuð sé minning páfans
Ég er ánægður með það að jarðaför páfans skyldi vera látlaus ekki nema 40 þjóðhöfðingjar og yfir milljón manns ég ætla að hafa mína jarðaför látlausa líka með 40 þjóðhöfðingja og milljón manns. Ekkert vesen og þurfa að hafa fyrir þessu. Hafa þetta bara látlaust og létt.
Posted at 09:39 pm by valli22
Permalink
Wednesday, April 06, 2005
LOKSIN ER ÉG Í SKÓLANUM... EFTIR MARGRA VIKNA BIÐ
Mættur á vatnið aftur. Þá er maður komin að austan og skólin tekur við hérna á laugarvatni. Hvaða fávita datt í hug að hafa þennan skóla svona lengst út í rassgati. Jæja ég er ekki nema 9 tíma að keyra þetta frá Eskifirði. Ég og Erla komum keyrandi á föstudaginn, sem betur fer var það ekkert vesen rigndi dálítið á leiðinni en ekkert svakalega samt. Þegar við keyrðum fram hjá Vík í Mýrdal sem er bær lengst úti í rassgati gat ég ekki annað en velt því fyrir mér af hverju þetta fólk byggi þarna. Hvað gerir allt þetta fólk þarna? Ekki sá ég frystihús eða sláturhús ? komst að þeirri niðurstöðu að Vík hlyti að vera draugabær að lokum vil ég bara óska fávitunum sem tóku nagladekkin undan hjá sér í síðustu viku því sumarið væri komið , hjartanlega til hamingju með heimskuna. Jæja herru Erla verður 20 ára á laugardaginn og ég þygg endilega hugmyndir
Ég vil svo bara ljúka þessu á smá sögu. Ég og Erla stoppuðum á Höfn og fengum okkur að éta. Fórum á stað sem heitir hafnarlúgan eða eitthvað svoleiðis og ætluðum að kaupa okkur í gegnum bílalúgu. Við lásum að á matseðlinum væri nokkuð sem hét beikondugga ég spurði stelpuna hvað dugga væri hún svaraði “ herru vestu hvað hlöllabátur er ? þetta er svona svipað “ ég brosti svona innan í mér og hugsaði “ veit hún ekki hver ég er ?” King of New York hlölli. Fyrirgaf henni þetta nú samt. Greyið búinn að búa í einangrun á Höfn í 18 ár

VÍK Í MÝRDAL
Posted at 02:26 am by valli22
Permalink
Wednesday, March 30, 2005
Jæja þá fer páskafríið að verða búið. Ef frí mætti kalla það ég er búinn að vinna í útskipun hjá Eimskip og lyftuvörður í Oddskarði um páskana og er að fara í þriðju vinnuna á morgun þegar ég leysi íþróttakennarann af í nokkra daga og eftir það er maður sloppin aftur í sveitasæluna á Laugarvatni. Ég og Erla eigum þá bara eftir að keyra 750 km og þá er maður komin heim jippí jey
Langaði svo bara að sýna ykkur hér að lokum hvað ég er svakalega fjölhæfur maður miðað við það ég á víst að vera hræðilegur ökumaður og skelfilegur lyftaramaður og óhugnalega klaufskur
Bæjarvinnan
Flæðilínunni í Frystihúsinu
Mótttökunni í rækjuvinnslunni
Loðnufrystingu hjá Frystihúsinu
Friðþjófur í saltfisk og síld
Fór einn túr á Hólmanesinu
Var í einn og hálfan mánuð á snurvoðsbát
Byggingarvinnu á Þórshöfn
Slátturmaður hjá bænum
Bakari á 67 á Egilsstöðum
Keyrði út Pizzum á 67 á Egilsstöðum
Dyravörður í Valaskjálf
Næturvörður í Menntaskólanum á Egilsstöðum
Mjólkurstöðinni á Egilsstöðum
Útkeyrslu hjá Kaupfélaginu á Egilsstöðum
Lagermaður hjá Mjólkursamsölunni
Byggingarvinnu hjá ÍAV á Álftanesi
Handlangari hjá múrara á Þórshöfn
Knattspyrnuþjálfari m.fl. kvenna
Kennari við Grunnskóla Eskifjarðar
Móttökustjóri hjá Eimskip
Bryggjunni hjá Eimskip
Löndun hjá Atlavík
Lyftuvörður í Oddskarði
Barþjón á hestamannaballi á Iðavöllum
Unnið á hestaleigu
Unnið á bátaleigu
Unnið sem þjónn
Áhaldahúsinu á Eskifirði
Posted at 12:58 am by valli22
Permalink
Friday, March 18, 2005
Jibbý jey þá er maður loksins komin heim í sveitasæluna og tilbúinn að takast á við sveitalífið. Alltaf gott að vera komin heim. Það tók mig og Erlu ekki nema 25 tíma að komast austur frá Laugarvatni. Jamm ég veit hvað þið haldið ég gleymdi að beygja hjá Reyðarfirði og fór óvart annan hring um landið... ahh... ands... jæja Erla mín Mývatnssveitin er falleg á þessum árstíma... ó nei þetta var sko ekki svona. Við lentum í stormi á suðurlandinu þar sem auðvitað er ekkert skjól. Hefur þetta fólk aldrei heyrt getið um firði jæja nóg um það við urðum að hringja í 112 til að fá hjálp á Skógum og 112 gaf mér samband við lögguna á Hvolsvelli og löggan gaf mér samband við fólk á Skógum sem leyfði mér og Erlu að gista. Það var mjög þægilegt. Mætti kannski fækka draugum um helming eða svo í skólahúsinu. Vöknuðum klukkan 8 í morgun og brunuðum í fjörðin fagra í góðu veðri. Djöfull er gott að vera komin heim
Posted at 11:52 pm by valli22
Permalink
Tuesday, March 15, 2005
MÆTTUR AFTUR ...SPRÆKUR SEM LÆKUR
HALLÓ HALLÓ HALLÓ Þá er maður komin aftur eftir virkilega langt frí. Ég ætlaði að vera búinn að setja inn myndir frá Akureyrarferðinni hjá bekknum mínum en ég finn ekki snúruna til að flytja myndir yfir. jamm maður er alltaf svo heppin. Ég var t.d. að halda fyrirlestur með Viggu, Einari og Ágústu í gær um baksund. Ég var látin fara fyrir máli okkar og látinn blaðra þarna út í gegn. ÉG byrjaði vel og var komin vel á skrið þegar ég fékk þá snildarhugmynd að láta fara betur um mig og ákvað að setjast upp á borð á meðan á lesningunni stendur en það fór ekki betur en svo að ég settist á myndvarpaborðið og braut það af..... gott hjá mér ... sem betur fer tóku bara 47 samnemendur mínir eftir þessu.þ... loffa að setja inn myndir bráðlega
Posted at 11:20 am by valli22
Permalink
Wednesday, January 05, 2005
Hér með tilkynnist að ég er hættur í íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni. Vegna gífulegs fjárskorts og skulda hef ég ákveðið að hætta í skólanum og flytja aftur austur á Eskifjörð. Ekki nema að einhverjir nenni að styrkja mig og leggja inn á bankabókina mína. endilega látið mig þá vita. :)
Posted at 10:54 am by valli22
Permalink
Thursday, December 23, 2004
Alvarleg kynferðisleg brenglun
Það að vera komin heim fylgja margir kostir en einnig gallar. Þannig er mál með vexti að við eigum tvo ketti Rósu og Tinna. Ég er nú yfirleitt skráður sem eigandi Rósu enda er hún mikið hænd að mér og finns ekkert eins gott og að sleikja á mér eyrnasnepplana. og Tinni er sonur hennar og óskilgetin sonur minn. Síðustu tveir dagar hafa verið frekar skrýtnir hérna. þannig er mál með vexti að Rósa er búinn að vera að drepast úr greddu og er búinn að nudda sér upp við allt sem hreyfist hérna innanhús enda þorir hún ekki út því það er svo kalt. Engin er óhulltur fyrir henni og jafnvel Siggi bróðir, hennar helsti óvinur hefur fengið sinn skammt af nuddi. Tinni sonur hennar hefur flúið undan greddu móður sinnar trek í trek og hefur falið síg hérna uppi í rúmi hjá mér... en sagan er ekki öll búinnn ó nei. ég flúði inni í herbergi með Tinna og lokuðum við hurðinn svo Rósa kæmist ekki inn. ég lá hérna og var bara að hanga á msn eins og góðum gelgjum sæmir ... byrjar Tinni ekki bara að nudda sér upp við andlitið á mér voða góður og svo stekkur hann á hendina á mér og byrjar að rúnka sér á fullu... HVAÐ er að ? held að hamstrarnir inni í herbergi séu búnir að smita kettina af einhverju greddukasti. Og Tinni er meira að segja geldur en það þýðir reyndar ekkert að útstýra þetta fyrir honum. Hann bara hristir hausin og labbar í burtu. Getur líka vel verið að þetta sé bara svona í familíunni. ég og Siggi vorum nú skapaðir á jólunum ef stærðfræðikunnátta mín er rétt, ágúst -9 mánuðir = GLEÐILEG JÓL MAMMA OG PABBI. Jæja ég er farinn í sturtu og skola af mér Löngu dauðar sæðisfrumur úr Tinna greyinu
Posted at 08:15 pm by valli22
Permalink
Wednesday, December 22, 2004
KOMIN HEIM Í HEIÐARFJÖRÐINN
jæja þá er maður loksins komin heim í fjörðin fagra. Rósa litla kærastan mín tók vel á móti mér og sleikti alvega út úr þegar hún sá mig og stökk svo og sleikti á mér eyrun. Elska þennan kött. Eg og Erla erum búinn að vera á fullu síðan við komum heim. Við erum búinn að baka 2 tegundir af smákökum, taka til fyrir múttu, detta í það og kaupa skötu sem er algjört lostæti, nammi namm. Siggi kom líka heim úr danaveldi . Við bræðurnir erum búnir að reykja ófáar fyrir framan sjonvarpið..

Höfuðstaður Íslands.... Reykjavík hvað.....
Posted at 01:00 pm by valli22
Permalink
Wednesday, December 08, 2004
HVAR ER VALLI ???????????????????????
HVAR ER VALLI ?
Þetta er ein af þessum spurningum sem fólk spyr sig gjarnan að. Til að svala forvitni fólks hef ég ákveðið að hafa hérna smá könnun um sjálfan mig. Það er ekkert að óttast hún gildir ekki nema 30%
Hvar er valli ?
Posted at 01:50 pm by valli22
Permalink
Monday, December 06, 2004
Í bloggi er þetta helst. Ég skeit á mig í lifeðlisfræðiprófinu í morgun. Ég hafði ekki einu sinni manndóm í því að skeina mér með prófinu. Hefði verið betur nýtt þannig og eitthvað gáfulegra en blekið mitt komist á prófið. Ég lærði samt eins og geðsjúklingur fyrir þetta próf dýhydroxíasetonfosfat má hoppa upp í rassgatið á sér
En nóg um það .... kennir manni að vera ekki að spila championship manager í tímum
Posted at 02:22 pm by valli22
Permalink